Video yükleniyor...

Video Yüklenemedi

Ana Sayfaya Dön

Ekki gleyma að flokka!

29,837 görüntüleme • 3 yıl önce •via X (Twitter)

2 Yorum

Izaky profil fotoğrafı
Izaky3 yıl önce

Nú ertu bara að FOKKA!

Stefán Þór Ólafsson profil fotoğrafı
Stefán Þór Ólafsson3 yıl önce

@arnarar 😂

Benzer Videolar

Ég: „900.000 reyna að komast inn á Schengen á hverju ári, 40% fá já og 60% fá nei og hversu margir af þeim sem fá nei verða eftir? 80%. Það er helmingurinn af þeim sem reyna að komast inn. Þannig að Schengen-landamærin eru hálfpartinn opin landamæri, sem við reiðum okkur á að séu okkar landamæri. Þetta er miklu alvarlegra en við áttum okkur á. Það eru ólöglegir hlutir að gerast í þessu.“ Grímur Grímsson: „Já, við megum ekki gleyma því samt sem áður að hagvöxtur á Íslandi byggist á því að það sé fólk sem vinnur störf. Ef við ætlum að vera miklu harðari á að fá fólk til starfa hérna mun það að einhverju leyti hafa áhrif á hagvöxtinn. Við verðum bara að gera okkur grein fyrir. Sjáum til dæmis Bandaríkin, nú er verið að tala um að flytja fleiri milljónir ólöglegra útlendinga úr landi. Hvað verður þá um þessi störf sem þetta fólk hefur verið að sinna? Það er búið að benda á þetta.“ Ég: „Auðvitað áttar maður sig á að hagvöxtur á Íslandi hefur byggst á því, að hann er ekki að verða meiri á hvern íbúa, heldur er hann bara meiri í heildina vegna þess að íbúum fjölgar með þessum gífurlega hraða sem hefur verið á síðustu árum. Þegar við tölum um að innflytjendur séu grunnur hagvaxtarins, verðum við líka að átta okkur á því að það eru líka ríki sem komast að þeirri niðurstöðu að það, að reiða sig á hagvöxt í gegnum innflutt vinnuafl og fá þannig fram þenslu, það er eins og að pissa í skóinn sinn. Hagkerfið er ekki að þróast þannig að framleiðnin og tæknin sé að verða betri, heldur er bara verið að fleygja fólki í hagkerfið og kalla þannig fram meiri umsvif. En það er ekki sá vöxtur sem við viljum. Við getum ekki leyst öll okkar vandamál með innfluttu vinnuafli.“

Snorri Másson

14,216 görüntüleme • 1 yıl önce