Загрузка видео...

Не удалось загрузить видео

На главную

HM í Handbolta verður Epic

16,636 просмотров • 1 год назад •via X (Twitter)

Комментарии: 0

Нет доступных комментариев

Здесь появятся комментарии из оригинального поста

Похожие видео

Mælt með að horfa til enda fyrir mjög viðeigandi ábendingu forseta… „Að bilast yfir ensku í almannarými“ segir um undirritaðan í fyrirsögn á Vísi í dag og ekki ætla ég að rengja miðilinn. „Grocery store, bakery, lunch, menu, street food, take away, open, closed.“ Þessi helst til kunnuglegu orð eru rétt svo toppurinn á ísjakanum þegar kemur að ótæpilegum ágangi enskunnar í öllu okkar daglega umhverfi, enska alls staðar á öllum skiltum um allt land, sums staðar á kostnað íslenskunnar sem hvergi sést. Þetta er að ágerast með hverjum deginum og ekkert af því sem hefur verið reynt hingað til hefur dugað. Nú er í grunninn tvennt í stöðunni. Annaðhvort höldum við áfram að vona að þetta mögulega skáni af einhverjum ástæðum, með öðrum orðum leyfum þessu einfaldlega að viðgangast þar til að nánast ekkert bendir til þess lengur í almenna rýminu að við séum í landi þar sem hið opinbera tungumál er íslenska. Eða við grípum til okkar ráða og beitum þeim tækjum sem við höfum á Alþingi Íslendinga. Það er mín tillaga. Ég hef nú lagt fram frumvarp sem er mjög einfalt að efni. Þar er lagt til að auglýsingar á Íslandi skuli vera á íslensku. Punktur. Önnur tungumál mega vera með enda stundum ástæða til þess. En íslenskan verður að vera og íslenskan verður að vera meira áberandi. Þetta gildir vel að merkja líka um skilti. Matvöruverslun var það – ekki „grocery store“. Við þá sem heyra þetta og hugsa að þetta sé kannski svolítið vel í lagt, vil ég spyrja á móti: Hversu langt á þetta að ganga áður en við bregðumst við? Tíminn er núna.

Snorri Másson

17,310 просмотров • 19 дней назад