正在加载视频...

视频加载失败

Réttur dómur eða🤨 #fotboltinet

42,276 次观看 • 2 年前 •via X (Twitter)

7 条评论

Nikola Djuric 的头像
Nikola Djuric2 年前

@islenskurbolti @vikingurfc @FcKeflavik Hárrétt. 100% víti.

Pétur Örn 的头像
Pétur Örn2 年前

@islenskurbolti @vikingurfc @FcKeflavik Minn maður Gunnlaugur Fannar í 100% rétti að rífa þennan trúð á fætur, þvílíkur leikaraskapur...til skammar fyrir viðkomandi.

asgeirhg 的头像
asgeirhg2 年前

@islenskurbolti @vikingurfc @FcKeflavik Aldrei víti!

Gudmundur Gudbergsson 的头像
Gudmundur Gudbergsson2 年前

@islenskurbolti @vikingurfc @FcKeflavik Aldrei víti. Ótrúlegt að dómarar fari ekki að skoða ákeðna leikmenn sem henda sér niður við hvert tækifæri til að fá víti og gera dómarana að athlægi. Trúðurinn eftir leikinn er Helgi Mikael, að láta plata sig svona.

Torfi Lúkas 的头像
Torfi Lúkas2 年前

@islenskurbolti @vikingurfc @FcKeflavik Óvanalegt að sjá Helga falla fyrir svona. Algjör grís að ná stigi úr leiknum.

Heiðar Austmann 的头像
Heiðar Austmann2 年前

@islenskurbolti @vikingurfc @FcKeflavik Bara aaaaaldrei víti

Hulda B Waage Ⓒ 的头像
Hulda B Waage Ⓒ2 年前

@islenskurbolti @vikingurfc @FcKeflavik Vá, flott þessi fótboltamenning.

相关视频

Forvitnileg umræða í þinginu í gær um margvíslega regnbogafána sem blakta við hún við skólabyggingar og jafnvel leikskóla á Íslandi. Ég fitjaði upp á smá spjalli um þetta umdeilda mál við Ingu Sæland, þar sem ég rifjaði upp heimsókn okkar í nýlegan grunnskóla í Reykjavík í kjördæmaviku í fyrra. Þar vakti það athygli mína að nánast hver einasti starfsmaður skólans gekk um með hálsband í fánalitunum, skólabókasafnið var allt þakið flennistórum regnbogafánum, auglýst var hinsegin-félagsmiðstöð fyrir allt frá 5. bekk og félagsmiðstöðin alsett sambærilegum skreytingum. Er ekki eitthvað bogið við hugmyndafræðilegar áherslur í skólakerfinu þegar slíkir fánar, sem minna sífellt meira á einhvers konar veraldleg trúartákn, eru ekki óvíða meira áberandi en sjálfur íslenski þjóðfáninn? Vissulega geta fánarnir þjónað því hlutverki að styrkja tilfinningu skólastjórnenda eða annarra starfsmanna fyrir eigin botnlausu manngæsku, enda yfirlýstur tilgangur þeirra auðvitað að þeir séu sérstök tákn umburðarlyndis, en fyrir mörgum foreldrum fela þeir mun frekar í sér óþægilegt brot á pólitísku hlutleysi skólanna. Fæstir þora þó að gera athugasemdir við málið og það er hin þekkta þversögn umburðarlyndisins. Það er allt annað en umburðarlyndi sem mætir þeim sem voga sér að lýsa efasemdum um fánana, að ekki sé talað um margvíslegan annan fræðsluáróður í skólunum eða umfangsmikla fræðslusamninga við Samtökin 78, á meðan kristinni kirkju og íþróttafélögum er úthýst úr skólunum. Í stuttu máli var svar menntamálaráðherra að margt væri í mörgu, öllum ætti að líða vel, en að hún tæki ekki sérstaka afstöðu til þess hvort fánar væru margir eða fáir á hverjum stað. Henni þætti þó vænt um kirkjuheimsóknir um jólin og ætti góðar minningar af jólaleikritum forðum.

Snorri Másson

12,117 次观看 • 2 个月前