正在加载视频...

视频加载失败

“Var Rikki að prumpa?” 🤣 ©️Stöð 2 Sport

10,623 次观看 • 2 年前 •via X (Twitter)

0 条评论

暂无评论

原始帖子的评论将显示在这里

相关视频

Stúdentapólitíkin er í fullum gangi og og ég rek augun í athyglisvert kosningaloforð Röskvu: Að erlendir nemendur, hvaðan sem þeir eru, eigi ekki að vera látnir greiða skólagjöld við Háskóla Íslands. Þessi ákvörðun er reyndar á forræði Alþingis en kannski Röskvuliðar telji sig geta talað um fyrir háskólaráðherranum úr systurhreyfingunni Samfylkingunni? Það er sá ráðherra sem ber ábyrgð á sérstöku frumvarpi þar sem leggja á skólagjöld á nemendur utan EES! Ísland hefur skorið sig úr sem eina norræna ríkið sem ekki innheimtir skólagjöld af nemendum utan EES og á undanförnum sjö árum hefur hlutfall þess hóps farið úr 3,89% í 7,44% af nemendum háskólans. Þegar OECD veitti Íslendingum ráð árið 2023 til að auka félags- og efnahagslegan ávinning af vaxandi hópi innflytjenda, var það á meðal tillagna að taka gjöld fyrir háskólanám til þess að laða hingað hámenntaða einstaklinga, tilbúna til að borga fyrir nám, í stað þess að stuðla að innflutningi minna eða lítið menntaða hópa. Auglýsingaherferðir á TikTok og margvíslegar aðrar vísbendingar hafa að undanförnu bent sterklega til þess að opið, ókeypis íslenskt háskólakerfi hafi reynst óeðlilega greið leið inn í landið fyrir innflytjendur úr öllum heimshornum – án þess að málefnalegar ástæður mæli með dvalarleyfi og jafnvel án þess að menn séu raunverulega komnir til þess að stunda hér nám. Breyting ráðherrans er því skref í rétta átt, þótt einnig sé brýnt að vinna að öðrum breytingum á dvalarleyfum erlendra nema og fjölskyldusameiningum á þeirra vegum. Um leið þarf að gæta þess í þessari vinnu að háskólinn hafi ákveðið svigrúm til þess að undanskilja frá gjaldtöku greinar sem Íslendingar hafa menningarlega hagsmuni af því að séu áfram gjaldfrjálsar fyrir erlenda nemendur, líkt og hlýtur til dæmis að koma til greina í tilfelli íslenskra miðaldafræða. Eins og ég fjallaði nýverið um er alþjóðavæðing háskólans annars slík orðin að ónefndur samfélagsrýnir gekk svo langt í mín eyru á dögunum að líkja Háskólatorgi við alþjóðaflugvöll, frekar en miðstöð æðri mennta á Íslandi. Skoða má slíka fyndni í ljósi sögunnar og röksemda þeirra sem einna fyrstir létu sig dreyma um stofnun íslensks háskóla, eins og Péturs Péturssonar þjóðfundarmanns og síðar biskups, sem skrifaði um miðja nítjándu öld: „Sú kennsla er fullkomnust, sem er þjóðleg, sem veitir hinu almenna vísindalífi í þjóðlegan farveg og hugsar og talar máli sinnar þjóðar.“ Á öndverðri tuttugustu öld, þegar þjóðarháskólinn var loks stofnaður, voru síðan allir með á nótunum: Hlutverk skólans var fyrst og fremst að kenna Íslendingum að stunda vísindi og hugsa skýrt – á íslensku. Ekki að bjóða gjörvallri heimsbyggð upp á ókeypis nám.

Snorri Másson

15,414 次观看 • 5 个月前

"Það er mjög dapurt. Ég veit ekki hvort það stafar af því að eftirliti eða slíku sé eitthvað ábóavant". - Sigurður Ingi, RÚV 25.04.2025 Þetta er ferskt myndband af Dýrlingnum, Saint Paul Edeh, frá því í morgun niðri við BSÍ. Farþegar sem settust upp í bílinn hafa hætt við ferð með honum og velja annan bíl. Sennilega tekið eftir háu startgjaldi. Við erum búin að þurfa eiga við þennan mann í 755 daga. FERILL: - Rekinn af 2 rútufyrirtækjum fyrir hótanir í garð samstarfsfólks. - Gerist afleysingarmaður á Hreyfli og rekinn stuttu seinna fyrir svindl. - Stal háum upphæðum af fjölda bílstjóra sem hleyptu honum á leigubílinn sinn. - Búinn að mála sig út í horn í stéttinni löngu fyrir nýju leigubílalögin og fær hvergi vinnu. NÝJU LEIGUBÍLALÖGIN: - Guðrún Huld Birgisdóttir yfirmaður leyfisveitinga hjá Samgöngustofu veitir honum leyfi til að reka sinn eigin bíl. - Rekinn af HOPP eftir bara tvo mánuði er ég gríp hann við að fæla kúnna burt sem fremsti bíll í KEF með vel uppsprengt verð upp á Ásbrú. Hann var svo ógnandi við mig að HOPP rak hann eftir að hafa séð myndband tekið af öðrum bílstjóra. ISAVIA á ekkert myndefni sjálft en brást heldur ekki við myndefninu sem þeim var sent. - Ömmur á Suðurnesjum að keyra taxa láta sig hverfa úr röðinni ef þær átta sig á að Dýrlingurinn er í grenndinni við þær í röðinni. Vaktin búin þann daginn. Sömu ömmurnar og eru nú búnar að missa kaffistofuna sína undir bænahús. - 3 mánuðum seinna búið að taka 3 skýrslur af honum í aftursætinu á lögreglubílum inni á gjaldsvæði ISAVIA. - 120 dag inn í lögin er ég fyrsti bílstjórinn til að hafa upp á vel földum yfirmanni bílastæðanna, Freyju Másdóttur, sem vissi ekkert hver Dýrlingurinn væri og hélt því fram að hún gæti ekki fengið að vita frá lögreglunni hvað lögreglan væri að gera með blikkandi ljós inni á gjaldsvæði ISAVIA áður en hún hljóp aftur inn í innri kjarna byggingarinnar og sást ekki aftur í tvo mánuði. - Ég gríp hann á mynd með 3000kr startgjald á Iceland Airwaves 2023. - Eftir 360 daga næst á myndband fremst í KEF neita túr og frussa "Fuck you" í andlitið á sextugum kvk-bílstjóra og "Fuck you and fuck your wife" í áttina að fullorðnum hjónum er þau voru við það að fara inn í bílinn fyrir aftan sig. ISAVIA á ekkert myndefni því þarna er Freyja Másdóttir enn að neita að setja upp eftirlitsvélar. ISAVIA brást ekki við myndefninu sem þeim var sent, ekkert frekar en við fjöldan allan af myndefni með brotum á samningi sem þeim hafði verið sent í heilt ár. - Löngu búinn að slá öll met í kvörtunum til Samgöngustofu en ekkert gerist. - Ég gríp hann með 9000kr startgjald við Ingólfstorg. - Ég gríp hann kvöldið eftir að láta mælinn tikka upp í 9000kr, var kominn í 8250kr er ég greip hann aftur við Ingólfstorg.

Taxý Hönter

19,521 次观看 • 1 年前

Það var vægast sagt upplýsandi að fylgjast með klemmu eins álitsgjafa Ríkisútvarpsins þegar finna þurfti hugsanlegar skýringar á fylgisaukningu Miðflokksins í Silfrinu í gær. Maður þekkir auðvitað vel hvernig sumir úr þeirri stétt hafa tapað öllum tengslum við almenning í landinu en ég viðurkenni að jafnvel mér var brugðið að heyra hvernig sumt fólk leyfir sér að tala á opinberum vettvangi. Svona hljóðaði skýringin sem Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur datt í hug á „ráðgátunni“ um aukið fylgi Miðflokksins: „Kannski getur maður sett það í samhengi við þetta bága læsi, að við virðumst vera hætt að lesa og skilja það sem við lesum.“ Vísast er að hafa sem fæst orð um þau viðhorf til íslenskra kjósenda sem birtast okkur í þessari kenningu. Í staðinn læt ég duga að benda Þóru Kristínu á líklegri skýringar á góðu gengi flokksins, sem sagt aðrar en þær að fólk lesi ekki jafnmargar bækur og hún. - Ríkisstjórnin lætur ekki af linnulausum skattahækkunum á almenning og fyrirtæki, á tímum þar sem ungt fólk kemst ekki inn á ónýtan húsnæðismarkað, m.a. vegna vaxtastigs og stjórnlausrar innflytjendastefnu, og sér ekki flöt á að fjölga sér. Þetta leiðir til samfélagslegs hruns þegar til lengdar lætur og Miðflokkurinn vill snúa þessu við. - Á sama tíma er ekki verið að forgangsraða íslenskum almenningi, heldur er skattfénu sólundað í útlendingamál, stórfurðuleg gæluverkefni stjórnvalda úti í löndum, útblásið opinbert kerfi og loftslagsiðnað sem ekki aðeins er óljóst hvort hafi nokkur áhrif, heldur er hreinlega ekki vitað í hvað þeir peningar fara. Við í Miðflokknum viljum snarbreyta um forgangsröðun. - Hvergi annars staðar í heiminum hefur innflytjendum fjölgað hraðar en á Íslandi á undanförnum árum. Íbúum hér fjölgaði þrettánfalt á við meðaltal í Evrópu á árunum 2017-2025 og 69% fjölgunarinnar eru erlendir ríkisborgarar. Við í Miðflokknum höfnum alfarið þessari stjórnlausu og illa ígrunduðu innflytjendastefnu sem getur að óbreyttu leitt til þess að við heimamenn endum í minnihluta í eigin landi og ekki bætir úr skák að fæðingartíðni er hér í frjálsu falli. - Úr því að vísað er hér til læsis, nefni ég að foreldrar þurfa sannarlega að lesa meira með börnum sínum og vekja líka hjá þeim stolt af sögu þjóðar. Þannig vaknar áhugi á tungumálinu og þar með skilningur á veröldinni. Þar að auki eigum við að krefjast miklu betri árangurs í menntakerfi okkar, sem er eitt það dýrasta í heimi. Eitt fyrsta skrefið þar eru samræmdir mælikvarðar í skólakerfinu, sem börn og foreldrar skilja og geta unnið út frá. Ríkisstjórnin og menntamálaráðherrann hafna þessu og eru að mörgu öðru leyti á gjörsamlega óskiljanlegri leið í menntamálum, sem er að opinberast betur og betur með hverju þingmálinu. - Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er hvort tveggja tvístígandi og ósamstíga þegar kemur að afstöðu stjórnvalda til þeirra stóru mála sem hér eru nefnd. Í stað þess að leita skynsamra lausna er oft og iðulega talað um að hreinlegast sé að fara bara með þjóðina inn í hnignandi sambandsríki Evrópusambandsins. Þannig á að treysta því að ef við framseljum bara fullveldi okkar til annarra, muni vandamál Íslendinga leysast. Við í Miðflokknum erum stoltir af sjálfstæðri íslenskri þjóð og höfum meiri trú á henni en þetta. - Við erum bjartsýn um að við getum breytt íslenskum stjórnmálum og að hægt sé að byggja hér upp fyrirmyndarsamfélag. Áhersla ríkisvaldsins þarf þó öll að vera á hagsmuni íslenskrar þjóðar til allrar framtíðar. Í grunninn er þetta auðvitað vilji alls þorra manna og þar komum við ef til vill að kjarna máls í góðu gengi Miðflokksins. Ólíkt mörgum sem telja að hið opinbera eigi að vera í hugmyndafræðilegu uppeldishlutverki gagnvart sótsvörtum almúganum, veljum við að hlusta einfaldlega á áhyggjur almennings og starfa í þeirra þágu. Við teljum fara betur á því en að hreyta því bara í fólk að það sé vitlaust og í þokkabót vont.

Snorri Másson

17,091 次观看 • 9 个月前

Ef einhver vonaðist til að metnaðarfyllsta ráðstöfun skattfjár í hvers konar woke hugarleikfimi hefði horfið af þingi með Vinstri grænum, eru líklega vonbrigði að heyra jafnréttismálaráðherra Viðreisnar staðfesta það hróðug í þingsal, að hún leggi nú fram „jafnréttisáætlun“ Vinstri grænna bókstaflega óbreytta. Ég gekk svo langt í umræðum um málið að velta því hreinlega upp hvort jafnréttisráðherrann nýi, úr hinum „markaðssinnaða og frjálslynda“ Viðreisnarflokki, hefði sjálf lesið í gegnum áætlunina áður en hún var lögð fram, svo ævintýralegar eru sumar aðgerðirnar. Í ljósi bakslagsins ógurlega í réttindum kvenna (sem ráðherrann vildi þó hvorki staðfesta að orðið hefði né þá skýra í hverju fælist) stendur m.a. eftirfarandi til: 🔵Fyrst skal uppræta mögulegt ójafnrétti í niðurgreiddri rafbílaeign yfirstéttar: „Samþætting kynja- og jafnréttissjónarmiða við úthlutanir úr Loftslags- og orkusjóði. Markmið aðgerðarinnar verði að rannsaka áhrif styrkveitinga sjóðsins til rafbílakaupa á jafnrétti kynjanna.“ (Það kemur reyndar fram í skýringum að eins og stendur virðist hinir fáránlegu krónutölurafbílastyrkir helst hjálpa konum sem kaupa aðallega smáa rafbíla. Engu að síður á að rannsaka áhrifin sérstaklega.) 🔵Unnið verði að því að „fanga kynjamynstur hugrænnar vinnu á Íslandi. Unnin verði eigindleg rannsókn á hugrænni vinnu með viðtalsviðbót við megindlega tímarannsókn Hagstofu Íslands og forsætisráðuneytis.“ Sem sagt eigindleg rannsókn þar sem rannsóknarspurningunni mætti lýsa sem svo: „Hvað eru þessar kellingar að spá?“ 🔵„Unnið verði áfram að innleiðingu jafnlaunavottunar“ – jafnvel þótt vísindaleg rannsókn háskólans hafi sýnt að vottunin hefur engin áhrif haft á launamun kynjanna og kostnaður íslenskra fyrirtækja vegna málsins sé nú talinn munu ná upp í 20 milljarða króna þegar uppi er staðið. 🔵Jafnréttisstofa skal áfram birta opinberan lista yfir fyrirtæki sem hafa keypt „jafnlaunavottunina“ – hamborgarastaði jafnt sem samlokustaði – meðalverðið hjá vottunaraðila er vel að merkja um 7,6 milljónir. 🔵„Markviss söfnun kyngreindra tölfræðigagna í sjávarútvegi og fiskeldi.“ 🔵„Markviss söfnun kyngreindra tölfræðigagna í landbúnaði.“ 🔵Kennarar í framhaldsskólum verði „fræddir“ um kynjafræði „til að tryggja inngildingu“ og „færni kennara til að flétta kynjafræði inn í aðra kennslu.“ 🔵„Flétta jafnréttisfræðslu inn í kennslu á öllum skólastigum“ - þar á meðal á leikskólum. Sem sagt tryggja innrætingu á alla línuna. 🔵Ekki kemur fram hvernig, en sagt er að unnið verði að því að „jafna hlut kvenna og karla í íþróttaumfjöllun“. Á meðan Íslandsbanki er enn í ríkiseigu dettur mér í hug að það mætti fá hann til að beita viðskiptabanni og auglýsa ekki í þeim miðlum sem óhlýðnast þessu. 🔵Þetta takmarkast ekki við íþróttaumfjöllun. Einnig verði horft til almennra fjölmiðla og leitað leiða til að auka „sýnileika kvenna“ þar, og jafnvel athugað hvort fjölmiðlar séu nokkuð að brjóta fjölmiðlalög sem kveða víst á um að „sjónarmið jafnt karla og kvenna komi fram.“ Þetta er auðvitað eðlilegt skref. Stundum þarf fréttamat sjálfstæðra fjölmiðla bara að víkja fyrir öðrum mikilvægari markmiðum ríkisvaldsins. 🔵Jafnréttisstofa skal fengin til að útbúa pólitísk uppeldisnámskeið um „samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða“ fyrir kjörna fulltrúa (!?) og stjórnendur sveitarfélaga á Íslandi. 🔵Útbúið verði „fræðslu- og kynningarefni um menningarnæmi og menningarlæsi“ ætlað starfsfólki í opinberri þjónustu. Meira opinbert uppeldi. 🔵Að lokum stendur til að gefa út fleiri „sjálfbær kynjuð skuldabréf“ – sem sagt taka lán hjá útlenskum woke bönkum til að fjármagna allt ofangreint.

Snorri Másson

14,008 次观看 • 1 年前

NEYÐARKALL TIL YFIRVALDA LANDSINS! Þið verðið að grípa inn í ástandið á leigubílastæðinu við alþjóðaflugvöllinn í ferðamanna-paradísinni Íslandi ekki seinna en strax. Það er allt fullreynt síðastliðnu 18 mánuði hvað varðar ríkistofnunina ISAVIA sem rekur flugvöllinn og lögregluna á suðurnesjunum. Hérna er hinn 32 ára Hekmatullah Mobariz forsprakki afgansks gengis niðri á velli sem gengur undir viðurnefninu "10þ-kallinn" eftir að hafa ítrekað verið gripinn með 10þ króna startgjald fremstur í röðinni í von um að túristar komi upp í bílinn hjá honum. Hann er að veitast að hinum grjótharða leigubílstjóra Ragnar Benediktssyni frá suðurnesjunum á áttræðisaldri í gærkveldi. Samkvæmt Ragnari neitaði fyrsti fremsti bíllinn að keyra fólkið til Njarðvíkur og er Ragnar hafði látið Hekmatullah heyra það þá varð Hekmatullah ofboðslega móðgaður yfir að vera sakaður um svindl. Ég þekki þetta alveg, svona stjórna þeir svæðinu með að gervimóðgast, fleygja fram rasisma-ásökunum og með hnefann á lofti. Þessi erlendu gengi njóta svo verndar lögreglunnar þar sem allir skjálfandi af ótta við að vera kallaðir rasistar. Það sést vel á farþegunum að þeim lýst ekkert á blikuna, það líður varla klukktími allan sólarhringinn þar sem farþegar verða ekki fyrir ömurlegri þjónustu og upplifun. Hekmatullah vinur minn varð fyrsti celeb-svindlkallinn innan leigubílastéttarinnar eftir nýju leigubílalögin. Í öllu svindlinu og svínaríinu fyrsta sumarið rétt eftir nýju lögin 2023 var algengt að sjá nýútskrifaða menn úr Ökuskólanum við Mjódd fremsta í röðinni stillta með mælana á 3000kr, 5000kr startgjöld, vera bjóða uppsprengd fast verð til Rvk til að okra, upprsprengd fast verð til Keflavíkur til að fæla kúnnana frá vegna stuttrar vegalengdar. Hekmatullah stakk hausnum upp úr allri óreiðunni með sitt fræga 10.000kr startgjald. Hann entist ekki 3 mánuði sem sjálfstæður rekstraraðili þegar það var búið að reka hann af sinni fyrstu leigubílastöð sem hann keyrði fyrir. Taxi Service-leigubílastöðin fékk tilskipun frá Samgöngustofu að reka 24 bílastjóra strax bara 3 mánuði inn í lögin, Guðrún Hrund yfirmaður leyfisveitinga hjá SGS er ekki þekkt fyrir að bregðast við neinu, svo maður getur rétt ímyndað sér flóðið af kvörtunum sem hún hefur fengið. Allir bílstjórarnir voru mættir aftur inn á svæðið 10 dögum seinna merktir City Taxa. Svona er þetta búið að ganga í 18 mánuði, ekkert hefur alvöru afleiðingar. Taxi Service barst einnig kvörtun eftir að Hekmatullah hélt að hann væri að keyra túrista til Rvk en reyndist vera íslendingur sem hafði samband við stöðina og krafðist þess að fá 10.000kr startgjaldið borgað til baka í túr sem kostaði hann 30þ en átti að kosta 20þ. Kollegar mínir náðu mynd af Hekmatullah vini mínum tilbúinn með 10þ kr á mælinum í röðinni og sendu á samgöngudeild Isavia a.k.a Freyju Másdóttur og Guðrúnu Hrund hjá SGS, þær högguðust ekki. Það er skemmst frá því að segja að Hekmatullah er enn inni á leigubílastæðinu við KEF rétt eins og alla hina 18 mánuðina. Eina fyrirtækið sem Hekmatullah Mobariz keyrir fyrir í dag, samkvæmt rekstrarleyfishafa-lista SGS sem er aðgengilegur á netinu, er HOPP. Besti vinur hans, fyrrum bílstjóri HOPP og City Taxi, er í dag að afplána 2 ára dóm fyrir brot gegn barni í leigubílnum sínum á Reykjanesbrautinni er hann keyrði 17 ára heim af djamminu frá Rvk til Reykjanesbæjar Svona uppákomur eru daglegt brauð þarna suður frá, þessi náðist á myndband þökk sé farþega í flugrútunni. Yfirmaður bílastæðaþjónustu Isavia, Freyja Másdóttir, hefur harðneitað í 18 mánuði að setja upp eftirlitsmyndavélar til að róa mannskapinn, það er liður í herferð Isavia gegn leigubílastéttinni til að beina farþegum flugstöðvarinnar frekar í flugrútuna og leyfa eftirlitslausri svokallaðri HOPP-kynslóð af leigubílstjórum að bjarga sér fjárhagslega með okri á túristum. Það sjást varla lengur íslenskir né pólskir bílstjórarnir þarna eftir myrkur þegar það ríkir frumskógarlögmál á svæðinu. Megi guð blessa allt miðaldra/eldriborgara landsins, sem eiga eftir streyma út úr sólarlandavélunum sem rignir niður á kvöldin og á nóttunni í allan vetur, og vantar leigubíl en geta ekki fundið íslenskumælandi bílstjóra. Tala nú ekki um túristana með engan skilning á verðlaginu. Freyja ber fyrir sig persónuvernd sem þykir ansi sérstakt í ljósi þess að allir sem stíga út úr bílum við brottfarasalinn ásamt öllum sem taka rútuna eru filmaðir.

Taxý Hönter

20,748 次观看 • 1 年前

Forvitnileg umræða í þinginu í gær um margvíslega regnbogafána sem blakta við hún við skólabyggingar og jafnvel leikskóla á Íslandi. Ég fitjaði upp á smá spjalli um þetta umdeilda mál við Ingu Sæland, þar sem ég rifjaði upp heimsókn okkar í nýlegan grunnskóla í Reykjavík í kjördæmaviku í fyrra. Þar vakti það athygli mína að nánast hver einasti starfsmaður skólans gekk um með hálsband í fánalitunum, skólabókasafnið var allt þakið flennistórum regnbogafánum, auglýst var hinsegin-félagsmiðstöð fyrir allt frá 5. bekk og félagsmiðstöðin alsett sambærilegum skreytingum. Er ekki eitthvað bogið við hugmyndafræðilegar áherslur í skólakerfinu þegar slíkir fánar, sem minna sífellt meira á einhvers konar veraldleg trúartákn, eru ekki óvíða meira áberandi en sjálfur íslenski þjóðfáninn? Vissulega geta fánarnir þjónað því hlutverki að styrkja tilfinningu skólastjórnenda eða annarra starfsmanna fyrir eigin botnlausu manngæsku, enda yfirlýstur tilgangur þeirra auðvitað að þeir séu sérstök tákn umburðarlyndis, en fyrir mörgum foreldrum fela þeir mun frekar í sér óþægilegt brot á pólitísku hlutleysi skólanna. Fæstir þora þó að gera athugasemdir við málið og það er hin þekkta þversögn umburðarlyndisins. Það er allt annað en umburðarlyndi sem mætir þeim sem voga sér að lýsa efasemdum um fánana, að ekki sé talað um margvíslegan annan fræðsluáróður í skólunum eða umfangsmikla fræðslusamninga við Samtökin 78, á meðan kristinni kirkju og íþróttafélögum er úthýst úr skólunum. Í stuttu máli var svar menntamálaráðherra að margt væri í mörgu, öllum ætti að líða vel, en að hún tæki ekki sérstaka afstöðu til þess hvort fánar væru margir eða fáir á hverjum stað. Henni þætti þó vænt um kirkjuheimsóknir um jólin og ætti góðar minningar af jólaleikritum forðum.

Snorri Másson

12,117 次观看 • 4 个月前