
Andrea Sigurðardóttir
@andreasig • 2,104 subscribers
Shorts
Videos

Spáið í hvað þetta er sjúk þórðargleði! Af veðrinu má sjá að þetta myndband var tekið upp áður en Seðlabankinn tók ákvörðun sína. Þetta lið er búið að bíða í ofvæni eftir vaxtahækkun, sem skaðar alla, og örvast allt við að hafa orðið að ósk sinni. Þetta er ekki fólk sem ber hagsmuni þjóðarinnar fyrir brjósti sér. Þetta er fólk sem er með agenda. Sérhagsmuni, leyfi ég mér að segja. Munum að það er sama fólkið og ber ríka ábyrgð á vaxtahækkununum undanfarið, sem er að reyna að selja þjóðinni þessa snákaolíulausn. Það eina sem aðildarviðræður gera er að tefja það að hægt verði að ná tökum á efnahagsmálunum hér. Við þurfum að taka til heima hjá okkur og koma á nýrri þjóðarsátt. Mikilvæg skref hafa verið stigin í hagstjórninni, með allt annarri peningastefnu. Við nutum þess á árunum fyrir Covid. Allt stefndi svo í rétta átt áður en vinstri stjórnin tók við. Næstu skref verða ekki stigin með klofna þjóð og vinstri stjórn við völd næstu árin. Það eina sem þarf er fólk við stjórnvölinn sem hefur getu og þor til þess að takast á við verkefnið. ESB eða ekki þá er það okkar að ná þessum vöxtum niður. Aðildarferli mun aðeins tefja það.
Andrea Sigurðardóttir11,464 Aufrufe • vor 20 Tagen
Keine weiteren Inhalte verfügbar