正在加载视频...

视频加载失败

23,469 次观看 • 9 个月前 •via X (Twitter)

0 条评论

暂无评论

原始帖子的评论将显示在这里

相关视频

„Það er uppi sú krafa að ef þú lýsir andúð á þjóðarmorði, talar um það eða greinir frá því sem gerist á Gaza á einhvern hátt, þá sé það túlkað sem gyðingahatur og stuðningur við gjöreyðingu ríkis Ísraels. Þetta er ósanngjarnt og ekki aðeins ósanngjarnt, heldur fáránlegt. Bernie Sanders ræddi þetta í þinginu nýlega og ég myndi vilja gera orð hans að mínum því ég tel mikilvægt að ítreka að mótmæli eru afar mikilvæg. Í lýðræðissamfélagi hefur hver maður rétt til að mótmæla. Hvernig hafa miklar samfélagsbreytingar orðið að veruleika? Við horfum aftur til fortíðar og heiðrum frelsishetjur sem börðust gegn aðskilnaðarstefnu og rasisma, eins og John Lewis sem var handtekinn 45 sinnum í baráttu sinni. Þetta eru hetjur sem við dáumst að núna. Nú er verið að handtaka stúdenta í hundraðavís sem er misboðið og er misjafn sauður í mörgu fé, áreiðanlega. En ég verð að viðurkenna að mér létti þegar ég sá bandaríska stúdenta loks taka afstöðu og láta í sér heyra, sem segir að við getum ekki setið hljóð þegar stjórnvöldin bera jafnmikla ábyrgð á ástandinu. Við getum ekki hunsað það sem er að gerast þar sem 34000 manns hafa verið myrtir. Ég þekki mann sem fór nýlega til Rafha sem er framkvæmdastjóri Lækna án landamæra. Hann sagði: „Það bara má ekki gerast að ráðist verði inn á Rafah. Það má ekki gerast“. Og það gerðist í dag. Vitið þið blóðbaðið sem við stöndum frammi fyrir, og þrátt fyrir að sagt sé að þetta sé ekki þjóðarmorð, því það hafi verið sendir dreifimiðar til fólks að það eigi að yfirgefa svæðið áður en þeir hefji sprengingar. Þetta er allt of alvarlegt til að við getum sagt að það sé óþægilegt. Það er einnig kúgun að neyða fólk til að þegja, því þá eru þau ásökuð um gyðingahatur, sem hefur enga stoð. Ég held að við munum líta til baka og sjá hvernig við töluðum og létum raddir okkar heyrast.“ Þóra Arnórsdóttir

Karen Kjartansdottir

22,458 次观看 • 2 年前

Ég: „900.000 reyna að komast inn á Schengen á hverju ári, 40% fá já og 60% fá nei og hversu margir af þeim sem fá nei verða eftir? 80%. Það er helmingurinn af þeim sem reyna að komast inn. Þannig að Schengen-landamærin eru hálfpartinn opin landamæri, sem við reiðum okkur á að séu okkar landamæri. Þetta er miklu alvarlegra en við áttum okkur á. Það eru ólöglegir hlutir að gerast í þessu.“ Grímur Grímsson: „Já, við megum ekki gleyma því samt sem áður að hagvöxtur á Íslandi byggist á því að það sé fólk sem vinnur störf. Ef við ætlum að vera miklu harðari á að fá fólk til starfa hérna mun það að einhverju leyti hafa áhrif á hagvöxtinn. Við verðum bara að gera okkur grein fyrir. Sjáum til dæmis Bandaríkin, nú er verið að tala um að flytja fleiri milljónir ólöglegra útlendinga úr landi. Hvað verður þá um þessi störf sem þetta fólk hefur verið að sinna? Það er búið að benda á þetta.“ Ég: „Auðvitað áttar maður sig á að hagvöxtur á Íslandi hefur byggst á því, að hann er ekki að verða meiri á hvern íbúa, heldur er hann bara meiri í heildina vegna þess að íbúum fjölgar með þessum gífurlega hraða sem hefur verið á síðustu árum. Þegar við tölum um að innflytjendur séu grunnur hagvaxtarins, verðum við líka að átta okkur á því að það eru líka ríki sem komast að þeirri niðurstöðu að það, að reiða sig á hagvöxt í gegnum innflutt vinnuafl og fá þannig fram þenslu, það er eins og að pissa í skóinn sinn. Hagkerfið er ekki að þróast þannig að framleiðnin og tæknin sé að verða betri, heldur er bara verið að fleygja fólki í hagkerfið og kalla þannig fram meiri umsvif. En það er ekki sá vöxtur sem við viljum. Við getum ekki leyst öll okkar vandamál með innfluttu vinnuafli.“

Snorri Másson

14,216 次观看 • 1 年前

THE SAINT STRIKES AGAIN! Þetta bara kvöldið eftir að ég fann hann með startgjaldið 9000kr á Ingólfstorgi. Ég er úti á gangstétt er það er einhverju hreytt í mig fyrir aftan mig varðandi vaxtarlag mitt og ungar stelpur, Dýrlingur mættur aftur og ekki í góðu skapi. Hann vissi ekki þarna að ég vissi að hann væri fjölskyldumaður svo ég er að spyrja hann hvort ég eigi að hringja í konuna hans varðandi allar ungu stelpurnar sem hans segist vera að sofa hjá á meðan ég fæ ekkert aktjón samkvæmt honum. Ég er löngu orðinn getulaus, hann er ekkert að hrófla við andlegu hliðinni á mér sama hvað hann reynir. Fyrstu 13sek er úr síma kollega míns sem ég vissi ekki af, er hann birtist með símann sinn á upptöku og byrjar að skoða mælinn sé ég að Dýrlingurinn er að láta hann tikka upp í 9000kr aftur. Hann hefur tekið túr upp á 5-6000kr og látið mælinn tikka líka tilbaka. Þetta er engin tilviljun, þetta er afleiðing þögn fjölmiðla síðastliðnu 750 daga og skjaldborgarinnar sem Isavia og lögregla á Suðurnesjunum sló upp í kringum erlendu gengin. Ekkert nema valdefling fyrir þá og ekki hjálpar afskiptaleysi Samgöngustofu, þeir líta á sig sem ósnertanlega á meðan þeir valta yfir okkur hina, íslendingana og 70% af erlendu bílstjórunum sem eru brjálaðir yfir því að dólga-30% fái óáreittir að eyðileggja allt fyrir öllum. Dýrlingurinn er nokkuð áreiðanlega með kæru á bakinu frá síðan 7.september 2024, ég er að skjóta á að kæran hljóði upp á að hafa frelsissvipt konu, ég hef séð myndband innan úr bílnum frá því kvöldi.
1:52

Sensitive content

Taxý Hönter

18,388 次观看 • 1 年前

"Það er mjög dapurt. Ég veit ekki hvort það stafar af því að eftirliti eða slíku sé eitthvað ábóavant". - Sigurður Ingi, RÚV 25.04.2025 Þetta er ferskt myndband af Dýrlingnum, Saint Paul Edeh, frá því í morgun niðri við BSÍ. Farþegar sem settust upp í bílinn hafa hætt við ferð með honum og velja annan bíl. Sennilega tekið eftir háu startgjaldi. Við erum búin að þurfa eiga við þennan mann í 755 daga. FERILL: - Rekinn af 2 rútufyrirtækjum fyrir hótanir í garð samstarfsfólks. - Gerist afleysingarmaður á Hreyfli og rekinn stuttu seinna fyrir svindl. - Stal háum upphæðum af fjölda bílstjóra sem hleyptu honum á leigubílinn sinn. - Búinn að mála sig út í horn í stéttinni löngu fyrir nýju leigubílalögin og fær hvergi vinnu. NÝJU LEIGUBÍLALÖGIN: - Guðrún Huld Birgisdóttir yfirmaður leyfisveitinga hjá Samgöngustofu veitir honum leyfi til að reka sinn eigin bíl. - Rekinn af HOPP eftir bara tvo mánuði er ég gríp hann við að fæla kúnna burt sem fremsti bíll í KEF með vel uppsprengt verð upp á Ásbrú. Hann var svo ógnandi við mig að HOPP rak hann eftir að hafa séð myndband tekið af öðrum bílstjóra. ISAVIA á ekkert myndefni sjálft en brást heldur ekki við myndefninu sem þeim var sent. - Ömmur á Suðurnesjum að keyra taxa láta sig hverfa úr röðinni ef þær átta sig á að Dýrlingurinn er í grenndinni við þær í röðinni. Vaktin búin þann daginn. Sömu ömmurnar og eru nú búnar að missa kaffistofuna sína undir bænahús. - 3 mánuðum seinna búið að taka 3 skýrslur af honum í aftursætinu á lögreglubílum inni á gjaldsvæði ISAVIA. - 120 dag inn í lögin er ég fyrsti bílstjórinn til að hafa upp á vel földum yfirmanni bílastæðanna, Freyju Másdóttur, sem vissi ekkert hver Dýrlingurinn væri og hélt því fram að hún gæti ekki fengið að vita frá lögreglunni hvað lögreglan væri að gera með blikkandi ljós inni á gjaldsvæði ISAVIA áður en hún hljóp aftur inn í innri kjarna byggingarinnar og sást ekki aftur í tvo mánuði. - Ég gríp hann á mynd með 3000kr startgjald á Iceland Airwaves 2023. - Eftir 360 daga næst á myndband fremst í KEF neita túr og frussa "Fuck you" í andlitið á sextugum kvk-bílstjóra og "Fuck you and fuck your wife" í áttina að fullorðnum hjónum er þau voru við það að fara inn í bílinn fyrir aftan sig. ISAVIA á ekkert myndefni því þarna er Freyja Másdóttir enn að neita að setja upp eftirlitsvélar. ISAVIA brást ekki við myndefninu sem þeim var sent, ekkert frekar en við fjöldan allan af myndefni með brotum á samningi sem þeim hafði verið sent í heilt ár. - Löngu búinn að slá öll met í kvörtunum til Samgöngustofu en ekkert gerist. - Ég gríp hann með 9000kr startgjald við Ingólfstorg. - Ég gríp hann kvöldið eftir að láta mælinn tikka upp í 9000kr, var kominn í 8250kr er ég greip hann aftur við Ingólfstorg.

Taxý Hönter

19,478 次观看 • 1 年前